Fríða(Jógó) í Svíþjóð
12.04.2007 18:49:43 / jogo

Tvær flugur í einu höggi

Smá fréttir :), Við Magnus eigum von á tvíburum í September/oktober... ég er sem sagt komin 14 vikur á leið með tvö kríli :):)

Er búin að gera heimasíðu svo að þið heima getið fengið að fyljgast með okkur fyrir og eftir fæðingu... http://www.barnaland.is/barn/60376 síðan er aðgangsstýrð en þið getið auðveldlega sent mér email í gegnum síðuna til að fá lausnarorðið. 

Annars líður mér rosa vel núna, var með frekar mikla ógleði í byrjun og hríðhoraðist en fékk þessar líka frábæru sjóveikitöflur sem redduðu mér svo nú er ég alltaf svöng ;).

En jæja farið nú vel með ykkur og við heyrumst :):)

Knús


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 07:38:07 / jogo

Friends

Núna er ég orðin hitalaus en ótrúlega orkulaus... svo nú get ég bara horft á friends. Fengum svo frábært brúðkaupsgjöf - alla friends seríuna á dvd. Kemur sér vel núna :):)


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 08:28:41 / jogo

Flensa

Er frekar slöpp heima með flensu :( ekkert svaka gaman, en er allavega að skána. Fyrsti dagurinn sem ég er nú næstum því ekki með hita frá því á sunnudaginn...

Í gær komu eftirlitsmennirnir fyrir baðherbergið okkar og skoðuðu hvað á eftir að gera, í stuttumáli sagt þá hefur ekki gerts neitt að ráði síðan um áramót, en núna skyndilega ætla þeir að klára þetta smá sem er eftir eins fljótt og hægt er. Og ástæðan er að þeir þurfa að fá lyklanna (skipta um skrá í til að hafa aðgang að íbúðinni þegar við erum ekki heima), þeir eru nefnilega byrjaðir á svo mörgum íbúðum að skrárnar eru að verða búnar hjá þeim... Ótrúlegt að þeir geti ekki drullast til að klára þetta fyrr við vildum svo gjarnan vera laus við þá...

 Annars er ég ein heima um helgina, Magnus er í Noregi á skíðum með vinnunni, frekar leiðinlegt að vera ein heima og veik, vonandi bara að ég verð frísk um helgina svo ég geti farið út... annars verð ég örruglega búin að mála alla íbúðina á sunnudaginn þegar magnus kemur heim bara af því að mér leiðist :).

En jæja vonandi hafið þið það gott :) knús og reynið nú að forðast flensuna

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 20:14:23 / jogo

Hæ :)

Gleðilegt nýtt ár J og takk fyrir það gamla....

 

 



Takk Alma fyrir að sparka í rassinn á mér ;), er búin að vera allof löt hérna.... J

 

 



Lífið eftir Afríku gengur sinn vanagang, við vorum með heimsókn frá Íslandi og Ameríku um jól og áramót og var ekkert smá gott að hafa mömmu Ingu systur og Niklas hérna hjá okkur. Alltaf svo notalegt að tala smá íslensku og vera með fjölskyldunni. J

 

 



Við erum svo að reyna að ákveða hvenær við komum heim næst hmmnm hugsa að það verði ekki um páskanna en kannski í vor. Við erum bara búin að taka því rólega síðan um áramót, enda ennþá svartasta skammdegi. Þó að maður sé farin að sjá aðeins glitta í dagsskímuna á morgnanna áður en maður fer inn að vinna.

 

 



Er annars búið að vera annsi lítil vetur hérna í Gautaborg, fyrst í gær sem kom frost og sól, annars bara búið að rigna eins og sum ykkar hafa séð í fréttunum, já og svo hafa komið nokkur óveður sem gera alltaf sinn usla. Þó að manni íslendingnum finnist þetta nú ósköp ræfislegt óveður, enda vön að keyra undir Hafnarfjallið...

En allavegana þá kom nú rok um daginn sem olli miklum skemmdum niður í smálöndunum, við erum ekki búin að fara að skoða en granninn sagði að það væru að minsta kosti 100 tré fallinn með rótarveltum og eyðileggingu og við sem vorum akkúrat búin að hreinsa svona nokkurn veginn eftir storminn fyrir 2 árum (eða það sem er hægt að hreinsa.... ) sukkkkk. En við ætlum að skella okkur niðureftir næstu helgi og kíkja á þetta allt saman.. og byrja að saga og brenna greinar o.s.frv.

 

 



Annars er allt gott að frétta af mér, er að fara niður til Lund í næstu viku að mæla og nóg að gera í vinnunni...

 

 



Nú svo er hálf fjölskyldan að koma hingað í sumar J J erum að skipuleggja óvissuferð fyrir þau og kíkja á gistingar ... J J verður ekkert smá gaman J..

 

 



En jæja ég ætla nú að reyna að vera duglegri að skrifa... alltof langt á milli.. J

 

 



Farið vel með ykkur...


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 11:40:06 / jogo

Myndir

Tékkið á myndunum frá Afríku sem eru undir myndir

8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 09:35:07 / jogo

Komin heim aftur og orðin afasystir

Við erum komin heim aftur eftir frábæra ferð JJ

 

 

 

 

 

Við sáum öll dýrinn í skóginum..... og flest mjög nálægt, við sáum fullt af ljónum, tígrisdýr upp í tré og svona hlébarða með unga (cheeth) (er það ekki þessi sem er minni og hleypur rosalega hratt?), gíraffa, hvítan nashyrning, sebrahesta, gný, vísunda, fullt af allskonar dádýrum og antilópum, hýenur, apa og svo framvegis. Var sem sagt alveg frábært J J. Við keyrðum frekar mikið í Kenya vorum ein í bíl með bílstjóra. Vegirnir voru nú ekkert sérstakir blautir og leirugir oftast keyrðum við við hliðina á vegunum, malbikið var svo illa farið að það var betra að keyra í skurðinum við hliðina á veginum. Við heimsóttum líka hirðingja sem búa með dýrunum sínum í þorpum sem eru byggð úr kúaskít og trjágreinum, maður hefur sko gott af því að sjá hvernig margir hafa það í Afríku. Ótrúleg fátækt sem maður skilur fyrst þegar maður er á staðnum og sér hana með eigin augum. Fólkið er samt glatt og hlær mikið, bílstjórinn sagði okkur að Maais fólkið væri mjög hamingjusamt, væri ekki til þunglyndi nema þegar það eru þurkar og dýrin þeirra svelta.

 

 

 

 

 

Við vorum 5 daga í Kenya og svo var ferðinni heitið til Zanzibar... áttum að lenda á Zanzibar um 8 leytið að kveldi en þá var eyjan rafmagnslaus svo það var ekki hægt að lenda svo við flugum till Dar es saalam i Tanzaniu og sátum á flugvellinum þar til 11 um kvöldið þegar okkur var skuttlað á hótel þar sem við vorum búin að tékka okkur inn um 1 leytið. Vorum svo vakin klukkan hálf fimm til að taka rútuna út á flugvöll aftur og fljúga til Zanzibar með morgunfluginu. Tók sem sagt meira en 16 tíma að komast til Zanzibar (flug sem átti að taka bara 1 og hálfan tíma). Vorum þess vegna rosalega glöð þegar við komumst á hótelið á  Zanzibar.

 

 

 

 

 

Voru á ekkert smá flottu hóteli niður við sjó, þar sem voru bara 2 önnur hótel. Sváfum í svona Bungaló, á neðri hæðinni með útsýni yfir ströndina – hvít sandströnd!! Var ekkert smá gott að slappa af eftir Safarí ferðina og bara taka því rólega... Þvílíkur dekurstaður og rosalega rómantískur..

 

 

 

 

 

Fórum í nokkrar ferðir frá hótelinu, til dæmis að skoða kryddbóndabæ, köfunarferð út á kóralrif nálægt hótelinu. Magnus kafaði en ég lét mér nægja að skoða kóralrifið frá yfirborðinu, var ekkert smá gaman að synda með öllum litlu gullfiskunum (og Memo J). Síðan fórum við í höfrungaferð þar sem við fengum að synda í sjónum með höfrungunum, ekkert smá gaman að sjá þá lengst niður í sjónum og svo koma upp á yfirborðið bara ca 1 metir frá manni!! Æðislegt!!

 

 

 

 

 

Svo komum við heim á aðfaranótt laugardagsins, eftir 22 tíma ferðalag!!.. Flugum Zanzibar – Nairobi, Nairobi – Amsterdam, og Amsterdam – Gautaborg. Þeir voru svolítið kærulausir í Amsterdam því að við þurftum að lenda aftur vegna þess að loftþrýstingurinn í farþegarýminu var ekki í lagi, kom svo í ljós að þeir höfðu gleymt að loka hurðinni alminnlega!!!! Hálvitalegt! Klukkutíma seinkun bara út af þessu...

 

 

 

 

 

Jæja svo komum við heim og ég fékk sms frá Ingu systir, Jonni bróðir er orðin AFI. Íris átt strák um aðfaranótt laugardagsins, ekkert smá duleg TIL hamingju með litla prinsinn J!! Svo ég er orðin afasystir... haldið að maður sé að verða gamal J J

 

 

 

 

 

Núna ælta ég að fara að pakka fyrir ferðina til Frankfurt, verð þar með vinnunni þessa vikuna og kem heim á föstudaginn.... Vonandi verður baðherbergið tilbúið þá!! Núna er gangurinn fullur af drasli sem á aðfara inní baðherbergið, t.d. klósett, vaskur, þvottavél, skápur spegil, sturta... get samt ekki reiknað með að þeir klári þetta í vikunni.... uff 8 vikan án baðherbergis...

 

 

 

 

 

Sjáumst síðar


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 19:19:55 / jogo

Afríka :)

Mikið rosalega er langt síðan ég hef skrifað eitthvað hérna... Tíminn bara flýgur áfram ;)

Það er búið að vera slatta mikið að gera í haust, við erum til dæmis búin að hafa iðnaðarmenn inná gafli hjá okkur í 4 vikur. Það er verið að skipta um lagnir og rafmagn í húsinu. Baðherbergið er í frumeindum, allt var rifið út. Þannig að við höfum þurft að nota klósett og sturtur í gám hérna fyrir utan (verið að skipta um í öllu húsinu (20 stigagangar eða eitthvað). Ekki neitt svaka gaman að þurfa að fara á klósettið á nóttunni ;). Það eru 3 vikur eftir, hlakka ekkert smá til að fá vatn og baðherbergi í íbúðina.

En áður en þetta er tilbúið förum við til AFRÍKU í brúðkaupsferð, takk kærlega öll sömul fyrir brúðkaupsgjöfina! :lol::lol:

Við fljúgum á sunnudaginn, lendum í Nairobi um kvöldmatarleytið og sofum eina nótt. á mánudaginn förum við svo í Safarí ferðalag um suðurhluta Kenya, verðum í 4 daga. Fáum að sjá (vonandi) fíla, ljón, nashyrninga, gírafa og svo framvegis. Við komum til með að sofa í tjaldbúðum í tvær nætur, svona luxus tjaldbúðir með sundlaug og alles J. EN verður örugglega geggjað að sofa í tjaldi og heyra öll hljóðin í dýrunum... hugsa reyndar að ég geti nú ekki sofið neitt rosa vel...

Síðan þegar safari ferðin er búin förum við til Zansibar sem er eyja fyrir utan Tansaníu, þekkt fyrir krydd og var einusinn verslunarmiðstöð múslima sem stunduðu viðskipti við Indland og Asíu. Ætlum að vera þarna í 7 daga eða eitthvað svoleiðis og bara slappa af og synda í sjónum, skoða höfrunga og kíkja á markaði o.s.frv.

Við komum svo heim 17 nóvember og þá dríf ég mig nánast beint til Frankfurt á námskeið í vinnunni... verð einn dag heima.  

Annars er ég að verða ömmusystir núna í nóvember, bróðir minn er að verða AFI, frekar fyndið en hlakka rosa til að sjá hvað kemur hjá Henni Írisi minni J.

En jæja læt þetta gott heita í bili.. Skrifa meira þegar ég er komin heim aftur...:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 10:12:22 / jogo

myndir

Ef ykkur langar til að skoða myndir frá brúðkaupinu þá eru nokkrar hérna :)

http://www.shonon.org/island2006/photogallery/wedding2006.htm

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 16:46:29 / jogo

Orðin frú

Jæja nú erum við nýkomin heim og nýgift, var ekkert smá skemmtilegur dagur og ferðalag á íslandi  J
Mæli sko eindregið með því að gifta sig er ekkert smá gaman og góð tilfinning
J J. Við vorum í íslandi í tvær vikur og fór fyrsta vikan nánast bara í undirbúning fyrir brúðkaupið... og gæsapartý með vinkonum mínum J var ekkert smá gaman!!

Við hlógum allan daginn!!

 

 



Dagurinn rann upp þann 15 júlí, veðrið var týpískt íslenskt, rok og rigning!!! Þulurinn í útvarpinu sagði að það væri mjög óvenjulegt að sjá svona hár tölur fyrir vindhraða að sumarlagi!! Enda var svolítið erfitt að fara á millli hús í fínum kjól og með uppsett hár. Við urðum að fá að fara út hjá nágrönnunum því að það er styttra  út á bílastæðið hjá þeim J J. EN við komumst nokkurnveginn  í lagi upp í reykholt og giftum okkur... ég var náttúrulega undir það búin að grenja alla athöfnina en viti menn á leiðinni inn gólfið hugsaði ég bara um veðrið og svo fór ég eiginlega ekkert að gráta fyrir En Guðrún og Íris byrjuðu að syngja og spila.. Var ekkert smá flott hjá þeim!!! J og svo var bara að skokka upp að altarinu og sjúga upp í nefið og segja já J J


Veislan var svo rosalega skemmtileg, ekkert smá margir sem héldu ræðu eða sungu (drossíurnar auðvitað) og langar mig að þakka öllum þeim sem komu fram
J J þið eruð æði ;)).. Svo var ball á eftir, Þotuliði úr Borgarnesi var að spila og voru þeir ekkert smá góðir! Get sko alveg mælt með þeim, get reddað símanum fyrir þá sem eru áhugasamir ;). Við brúðhjónin fór svo upp á hótel Reykholt uppúr 2, og var búið að skreyta herbergið með rósum súkkulaði kampavíni og jarðaberjum J Ekkert smá sætt. (takk Inga, Sólrún og Niklas ;)). Svo voru nokkrir svíar búnir að blása upp smokka og setja í rúmið J:D svolítið fyndnir ;:D

 

 



Vikuna eftir brúðkaupið vorum svo leiðsögumenn fyrir fjölskylduna hans Magnusar, en þau voru öll hérna og öll í fyrsta skiptið...

Svo komum við aðeins við á ættarmótinu heima á Gunnlaugsstöðum.. og flugum svo út til Gautaborgar... notuðu svo síðustu vikuna mína í sumarfríi til að fara á sjóninn og synda og liggja í sólbaði og fórum líka í smá siglingu í 4 daga með Ronny Vini okkar...

 

 



Svo nú er bara hversdagsleikinn byrjaður aftur, maður bara byrjaður að vinna og hlakka til að fara í brúðkaupsferð til Afríku í haust J

 

 



KNús til allra


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.07.2006 19:51:22 / jogo

4 dagar þangað til ég fer heim :)

og 12 dagar þangað til við giftum okkur :):) hlakka ekkert smá til :)

Verð að vera duglegri að blogga þetta er ekki hægt. Lofa að skrifa meira seinna!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 15:12:19 / jogo

uff long time no see

ég er bara alltof löt við að skrifa hérna.... en jæja er sem sagt byrjuð í nýju vinnunni og líkar bara rosa vel. Er búin að fara í tvær ferðir í viku í einu og mæla og safna gögnum. Bara rosa fínt!

Er svolítið eins og að vinna hjá landmælingum fullt af ungu fólki sem er gaman að vinna með :).

Við erum svona að leggja lokahönd á undirbúninginn með mikilli hjálp að heiman... bara eftir að ákveða smá atriði. farið að koma smá fiðringur í mig... enda bara tveir mánuðir ´hmm ég meina minna en tveir mánuðir í þetta.

Núna erum við að fylla í svona hjúskaparstöðuvottorð og um leið senda inn hvað við ætlum að heita í eftirnafn. Í svíþjóð breytir maður nefnilega oftast um eftirnafn og þó að maður geri það ekki verður maður að skila in eyðublaði þar sem það stendur að við ætlum að halda okkar eftirnöfnum. Enda ekki hægt að heita Jófríður Carlsson eða Magnus Guðmundsdóttir... :)... Eða hvað finnst ykkur?????


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 19:22:59 / jogo

Gleðilega páska

Fyrsti dagurinn búinn í nýju vinnunni 8):D Leist bara rosa vel á þetta!!

Var nú mest að lesa og skoða á netinu í dag þar sem ég var ekki með réttindi til að breyta í gagnagrunnunum. Í næstu viku fer ég svo í fyrstu ferðina, 4 daga ferð til Skánar að mæla og safna upplýsingum. verður svaka stuð, vantar bara Steinunni þá er þetta bara eins og í gamla daga :):) hjá landmælingum.

Páskarnir voru voða fínir voru að vinna í skóginum, planta og taka til. Komum svo til með að planta 2000 plöntum í maí ;) verður svaka fjör ... einhver sem vill gerast sjálboðaliði og fljúga til okkar :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 18:07:53 / jogo

6 dagar eftir

af vinnunni og svo er páskafrí og svo BYRJA ÉG Í NÝRRI VINNU!!!!!!!!!!!!

Hlakka ekkert smá til að hætta að ferðast í lest til að komast í vinnuna.. Í gær endaði það með því að við tókum leigubíl til að komast heim. Lestrnar klukkan 6 og 7 komu aldrei (fastar einhverstaðar á leiðinni) svo klukkan hálf átta um kvöldið pöntuðum við leigubíl sem kostaði 10 000 íslenskar til að komast heim. OG Vasttrafik (fyrirtækið sem rekur almenningsamgöngurnar hérna í Gautaborg) á sko að borga... þeir eru með svona ferðatryggingar sem eru þannig að ef þú ert orðin 20 mínútum of seinn út af lestunum.. þá máttu panta leigubíl fyrir hámark 3000 per haus.  Og við vorum 4 sem deildum leigubíl.. Hefðum átt að panta leigubíllinn miklu fyrr!!!

SVo ég kom heim klukkan 9 í gærkvöldi, (og fór að heima korter yfir sex um morguninn).. svo ég var dulítið þreytt :( og svo gott að komast heim og sofnaaaaaaaaaaaaa

En dagurinn í dag var fínn komst heim á réttum tíma.


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 16:45:19 / jogo

Uff hvað tíminn líður hratt!!

Verð að vera aðeins duglegri að skrifa hérna!! Allt gott að frétta úr vetraríkinu hérna í Gautaborg. Búið að vera snjór síðan um áramót sem liggur kjurr á jörðinni!! Og frekar mikið frost, síðustu vikur er búið að vera 10 stiga frost nánast á hverjum degi. Sem sagt frekar vetrarlegt hérna. Vorið átti víst að koma 2 mars en lætur bíða eftir sér!!

 

 



Núna er bara einn mánuður í að ég skipti um vinnu, hlakka rosalega til J JJ JJ

Um næstu helgi ætlum við niður til Smálandanna að kíkja á skóginn, erum ekki búin aðvera dugleg núna að fara niður eftir reyndar ekki mikið sem maður getur gert í snjónum J. En allavega þá er búið að panta 2500 plöntur sem við ætlum að gróðursetja í maí, verður gaman J.

 

 



Brúðkaupsplönin ganga bara vel, erum ekki búin að gera mikið síðan um áramótin heima, hlakka geðveikt til J

 

 



En hvað er að frétta af ykkur annars?

 

p.s. Stína ég kom ekki til köben :(


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 19:26:37 / jogo

Var klukkuð... svo hérna koma svörinn...

Fjögur störf sem ég hef unnið við
Þjónn
Afgreiðsludama á videóleigu
Landbúnaðarstarfsmaður
J
Landfræðingur

Fjórar myndir sem ég gæti horft á aftur og aftur
Með allt á hreinu
Titanic
Dances with the wolvs
Stella i Orlofi

Fjórir staðir sem ég hef búið á
Uff það eru margir….
Gunnlaugsstaðir, Borgarnes, reykjavik, akranes
Salzburg
Luzern
Gautaborg

Fjórir sjónvarpsþættir sem ég fíla að horfa á
Friends
Sex in the city
Desperate Housewives
CSI

Fjórir staðir sem ég hef ferðast til (í fríi)
Sviss
Kýpur
Svalbarði (noregur)
Ítalía
....

Fjórar vefsíður sem ég fer inná daglega
Mbl.is
vargarda.se
Sj.se
bloggsíður

Fjórar uppáhaldsmatartegundir
Lambakjöt
fiskur
Graslauksfiskurinn hans Magnusar
Tælenskur matur

Fjórir CD sem ég gæti ekki verið án
Sigurrós
Sálin hans Jóns míns - Undir Þínum Áhrifum (bara sá nýjasti, elska þá alla)
Coldplay
og fleiri man aldrei hvað þessir diskar heita

Fjórir staðir sem ég myndi frekar vilja vera á
Ísland
Grikkland hef aldrei komið þangað
Sviss, í fjöllunum
Smálöndunum….

 

Klukka Írisi, Ingu og ....hmm hvern í viðbót Mumma og Sólveigu.. :)

Takk fyrir hamingjuóskirnar ..


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5